Sértæk þjónusta fyrir börn og ungmenni
Markmið Klettabæjar er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu.

Þjónusta Klettabæjar
Klettabær starfrækir sértæk búsetuúrræði til langs- og skamms tíma. Við bjóðum einnig upp á hvíldardvalir auk fjölbreyttrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu í Þjónustumiðstöð Klettabæjar og Náms- og starfssetri Klettabæjar (NOS).
Búseta
Sértæk búsetuúrræði til langs- og skamms tíma.
Þjónustan er einstaklingsmiðuð og lagt er upp með heimilislegt og hlýtt andrúmsloft.
Hvíldardvöl
Hvíldardvöl í öruggu umhverfi.
Klettabær býður upp á reglulegar hvíldardvalir í öruggu umhverfi t.d. fastar helgar eða vikur. Ef aðstæður leyfa þá er möguleiki á bráðavistun.
Þjónustumiðstöð
Þjónustan er sérsniðin að þörfum hvers einstaklings.
Þjónustumiðstöð er yfirheiti yfir fjölbreytta starfsemi sem byggist á heildrænni nálgun og sveigjanlegri þjónustu.
NOS
Náms- og starfssetur Klettabæjar
Náms- og starfssetrið (NOS) býður upp á náms- og atvinnutengd úrræði fyrir börn og ungmenni og starfar eftir hugmyndafræði tengslamyndandi nálgunar.