Eldvarnarstefna Klettabæjar
Klettabær leggur ríka áherslu á að tryggja öruggt vinnuumhverfi og lágmarka hættu á eldsvoða.
Tilgangur og markmið
Markmið eldvarnarstefnu Klettabæjar er að tryggja öryggi starfsfólks, þjónustunotenda, umhverfis og eigna með markvissum aðgerðum sem miða að því að fyrirbyggja eldsvoða og lágmarka tjón ef eldur kemur upp. Félagið leggur áherslu á að uppfylla allar lagalegar kröfur um eldvarnir og stuðla að virkri öryggismenningu meðal starfsfólks.
Megin áherslur
Til þess að framfylgja eldvarnarstefnu þessari leggur Klettabær áherslu á að:
- Eldvarnarbúnaður sé í lagi og reglulega yfirfarinn.
- Starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og þjálfun um eldvarnir og viðbrögð við eldsvoða.
- Til staðar sé viðbragðs- og rýmingaráætlun.
- Ábyrgð starfsfólks og stjórnenda sé vel skilgreind.
- Virkt eftirlit sé haft með eldvörnum.
Umfang
Allir starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á því að fylgja eldvarnastefnu félagsins og hafa virkt eftirlit með eldvörnum í daglegum störfum sínum.
Eldvarnarbúnaður
Slökkvitæki
Handslökkvitæki er ætlað að slökkva eld á byrjunarstigi, áður en hann vex og verður óviðráðanlegur.
Á öllum heimilum Klettabæjar eru til staðar handslökkvitæki staðsett í forstofu og í undantekningartilvikum inni á skrifstofu.
Slökkvitækin eru léttvatnstæki sem henta á A- og B-eld og að auki á eld í rafbúnaði ef rétt er að verki staðið.
Handslökkvitæki skal skoða mánaðarlega auk þess sem að viðurkenndur eftirlitsaðili skal yfirfara tækin árlega.
Eldvarnarteppi
Eldvarnarteppi er ætlað til notkunar ef upp kemur eldur við eldamennsku eða ef kviknað hefur í fatnaði einstaklings.
Á öllum heimilum Klettabæjar eru til staðar eldvarnarteppi staðsett á sýnilegum og aðgengilegum stað í eldhúsi íbúðar.
Undir engum kringumstæðum á að slökkva eld í olíu eða feiti með vatni vegna hættu á sprengingu.
Reykskynjarar
Reykskynjarar geta komið í veg fyrir eldsvoða og bjargað mannslífum.
Samtengdir reykskynjarar eru til staðar í öllum rýmum fyrir utan baðherbergi.
Aldrei skal fjarlægja reykskynjara. Ef eldur er ekki til staðar er hægt að slökkva á hljóðinu með því að þrýsta á miðju hnappinn á skynjaranum.
Reykskynjarar skulu prófaðir að minnsta kosti fjórum sinnum á ári. Rafhlöðurnar eru með 10 ára endingu.
Fræðsla og þjálfun
Mikilvægt er að starfsfólk sé vel upplýst um áhættuþætti og fái fræðslu um eldvarnir og fyrstu viðbrögð við eldsvoða.
Klettabær leggur ríka áherslu á að starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og þjálfun með það að markmiði að fyrirbyggja eldsvoða, auka viðbragðsgetu og efla vitund um eldvarnir í daglegu starfi:
- Fræðsla um eldvarnir í nýliðafræðslu.
- Eldvarnarnámskeið, bæði bókleg fræðsla og verkleg þjálfun fyrir stjórnendur.
- Rýmingaráætlanir og sjónrænar rýmingaráætlanir til staðar.
- Brunaæfingar haldnar í skólaúrræðum.
- Brunaæfingar haldnar í skrifstofuhúsnæðum.
- Eldvarnarstefna til staðar.
- Kafli um eldvarnir í Siðareglum Klettabæjar.
Leggið ykkur sjálf eða aðra aldrei í hættu við slökkvistarf.
Rýmingaráætlun
Eldur er fljótur að breiðast út og því er mikilvægt að til staðar sé áætlun um hvernig yfirgefa eigi heimilið ef eldur kemur upp og að allir viti hvernig bregðast eigi við.
Hjá Klettabæ eru til staðar tvær gerðir rýmingaráætlana á hverju heimili. Annars vegar er rýmingaráætlun staðsett á skrifstofu hvers heimilis sem er ætluð starfsfólki til viðbragða við eldsvoða og rýmingu. Hins vegar er sjónræn rýmingaráætlun sýnilega upp á vegg á hverju heimili sem er ætluð þjónustunotanda, starfsfólki og öðrum gestum. Allir þjónustunotendur hafa fengið kynningu á sjónrænni rýmingaráætlun fyrir sitt heimili. Rýmingaráætlanir taka mið af aðstæðum hvers heimilis.
Í rýmingaráætlun er m.a. að finna eftirfarandi:
- Flóttaleiðir.
- Viðbrögð við eldsvoða.
- Staðsetningu á eldvarnarbúnaði.
- Söfnunarsvæði.
Ábyrgð starfsmanna
Starfsfólk gegnir lykilhlutverki í eldvörnum og öryggi á vinnustað. Hver og einn ber ábyrgð á að fylgja verklagi og stuðla að öruggu umhverfi.
Starfsfólk ber ábyrgð á að:
- Kynna sér eldvarnarstefnu félagsins, rýmingaráætlun og sjónræna rýmingaráætlun.
- Kynna sér staðsetningu eldvarnarbúnaðar.
- Gæta þess að flóttaleiðir séu ávallt greiðfærar.
- Tryggja að aðgengi að slökkvitæki og eldvarnarteppi sé í lagi.
- Vera upplýstir um fyrstu viðbrögð ef eldur kemur upp.
- Gera yfirmanni eða eldvarnarfulltrúa vart ef eldhætta er til staðar eða búnaður ekki í lagi.
- Hindra ekki, fjarlægja né gera óvirkan öryggisbúnað, þar með talið reykskynjara.
Umgengni og árvekni
Virkar eldvarnir byggjast að miklu leyti á daglegri umgengni og árvekni
starfsfólks. Starfsfólk ber ábyrgð á að:
- Tryggja hreinlæti og halda ruslasöfnun í algjöru lárgmarki.
- Gæta þess að grill sé vel þrifið og hreinsað reglulega.
- Passa að gaskútur sé staðsettur við hliðin á grilli en ekki undir því.
- Hlaða aldrei síma eða önnur raftæki í sófa eða rúmi og gæta að þjónustunotandi geri ekki slíkt hið sama.
- Fara aldrei frá meðan á eldamennsku stendur.
- Skilja aldrei hluti eftir á eldavél.
- Hafa þvottavél, þurrkara, og uppþvottavél aldrei í gangi þegar heimili er yfirgefið.
- Hreinsa ló sem safnast í þurrkara.
- Slökkva ávallt á raftækjum þegar þau eru ekki í notkun.
- Nota aldrei skemmd eða óhrein hleðslutæki eða fjöltengi.
Eigið eldvarnareftirlit
Öflugt eigið eldvarnareftirlit er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn eldsvoða. Eftirlitið felur í sér daglegt og reglubundið eftirlit sem fyrirtæki og stofnanir sinna að eigin frumkvæði. Með eigin eldvarnareftirliti er hægt að koma í veg fyrir eða draga verulega úr líkum á að eldur komi upp í starfseminni.
Klettabær leggur ríka áherslu á að eldvarnir séu í lagi og að reglubundið eftirlit sé haft með þeim í samræmi við gildandi lög og reglur.
Klettabær framkvæmir:
- Mánaðarlegt eftirlit með eldvörnum.
- Árlegt eftirlit með eldvörnum.
- Úttekt af hálfu öryggisnefndar ársfjórðungslega.
Ef skoðun leiðir í ljós að úrbóta sé þörf ber eldvarnafulltrúa að bregðast við því svo skjótt sem auðið er.
Eldvarnarfulltrúi
Ein meginforsenda fyrir vel heppnuðu og virku eldvarnareftirliti hjá fyrirtækjum er að skipaður sé eldvarnarfulltrúi sem hefur umsjón með eldvörnum og viðhefur eftirlit með þeim.
Eldvarnarfulltrúi skal taka þátt í tilkynntum eftirlitsskoðunum, hafa þekkingu á brunavarnalöggjöf og brunatæknilegu og skipulagslegu fyrirkomulagi í mannvirkinu og jafnframt á möguleikum slökkviliðs til að bregðast við eldi í mannvirkinu.
Andri Steinar Hallgrímsson hefur verið tilnefndur eldvarnarfulltrúi Klettabæjar og situr hann jafnframt í öryggisnefnd félagsins.
Eldvarnarstefna samþykkt apríl 2026