Klettabær er vinnustaður í fremstu röð 2023

Klettabær er vinnustaður í fremstu röð 2023

Klettabær er á meðal þeirra vinnustaða sem uppfylla skilyrði Moodup til að hljóta viðurkenninguna Vinnustaður í fremstu röð árið 2023. Skilyrði þess að hljóta nafnbótina er að mæla starfsánægju í það minnsta einu sinni á hverjum ársfjórðungi, bregðast við þeirri endurgjöf sem starfsfólk skrifar, auk þess að ná árangursviðmiði samanborið við aðra íslenska vinnustaði.

Með því að uppfylla þessi skilyrði hefur Klettabær sýnt í verki að stjórnendur hlusta á starfsfólk, sýna í verki að álit þess skiptir máli, og ná árangri þegar kemur að því að auka og viðhalda hárri starfsánægju.

Viðurkenningin staðfestir þannig að Klettabær hugsar vel um starfsfólk sitt og tryggir því framúrskarandi starfsumhverfi.

Klettabær mini logo